Sólbrekka 1, 640 Húsavík
Tilboð
Fjölbýli/ Tvíbýli
5 herb.
160 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
72.600.000
Fasteignamat
46.300.000

Lögeign kynnir eignina Sólbrekka 1, 640 Húsavík

Um er að ræða mikið endurnýjaða, fjögurra herbergja efri hæð í tvíbýlishúsi auk bílskúrs sem búið er að breyta í útleiguíbúð. Innra skipulag er gott og útsýnið bæði úr stofu og af svölum er mjög gott. Samtals stærð eignar er 160,9 m2, og þar af er íbúðarhluti 128,1 m2. Húsið er byggt árið 1974. 

Nánari lýsing: Forstofa, hol,stofa, eldhús, þvottahús, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. 

Forstofa: komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu tekur við stigi upp á efri hæðina sem er aðal hæðinn. 
Hol: þegar komið er upp stigann tekur við Hol, holið tengir samann herbergisgang, stofu og stofu. Auk þess sem útgengi er úr holinu út á svalir. 
Stofa: er rúmgóð, nýtist bæði sem borðstofa og sjónvarpsstofa. Stórir gluggar sem gefa rýminu góða birtu, ásamt því að opið er milli borðstofu og eldhús sem gefur rýmunum enþá meiri birtu og myndar gott flæði á hæðinni. 
Eldhús: er með viðarlitaðri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, flísalagt á milli skápa. Inn af eldhúsinu er þvottahús með aðstöðu fyrir bæði þvottavél og þurrkara, vask og hillum. 
Baðherbergi: var endurnýjað á smekklegan hátt með flísum í hólf og gólf, sturtubaðkari, viðarlitaðri innréttingu, stór spegill með innbyggðri lýsingu og vegghengdu Wc. 
Þrjú svefnherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og með stórum fataskáp og svo tvö aðeins minni barnaherbergi. 
Bílskúr: árið 2025 var íbúð í bílskúr endurnýjuð og einnig var neysluvatn í bílskúr og frárensli endurnýjað. Búið er að útbúa geymslu framan við bílskúrshurðina sem er góð viðbót við eignina. 

Endurbætur árið 2018 - 2019:
  • Gluggar ásamt útidyrahurð og svalahurð
  • Gólfhiti settur, gólfefni endurnýjuð og íbúðin máluð í framhaldinu. 
  • Stofan opnuð og veggir gipsaðir. 
  • Baðherbergi endurnýjað 
  • Ný bekkplata sett á eldhúsið
  • Allt rafmagn og neysluvatn endurnýjað og varmaskiptir settur á í framhaldinu. 
  • Húsið var síðan málað að utan árið 2021
Að utan: rúmgott malarbílastæði sem rúmar 4 bíla er framan við eignina, gróinn garður er í kringum húsið og verkfæraskúr. Aftan við húsið er búið að útbúa stæði fyrir hjólhýsi með góðu aðgengi upp að húsinu. 

Annað:
-Eignaskiptayfirýsing er til fyrir húsið. 
-þinglýst samþykki er fyrir stækkun á svölum.

Afhending eignar yrði í janúar 2026.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lfs. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lfs. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.