Garðarsbraut 75, 640 Húsavík
21.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
2 herb.
42 m2
21.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1967
Brunabótamat
23.050.000
Fasteignamat
17.150.000

Lögeign kynnir eignina Garðarsbraut 75, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01.

Um er að ræða 42,9 M² íbúð á jarðhæð í þriggja hæða fjöleignarhúsi, húsið er byggt árið 1967 úr steypu. Aðgengi að eigninni er gott, steypt gangstétt upp að húsinu og malbikað bílastæði norðan við húsið. 

Nánari Lýsing: Eitt svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi.

Komið er inn í parketlagða forstofu með fatahengi, á V/hönd er baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf, frístandandi Wc, sturtuklefi og hvít vaskainnrétting með háum skáp. Lítill parketlagður herbergisgangur er inn af forstofu þar sem er eitt svefnherbergi sem er parketlagt. Stofan er rúmgóð og björt, nýtist bæði sem sjónvarpsstofa og borðstofa. Eldhúsið er í opnu rými með stofunni og er með hvítri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum, flísalagt á milli E og N skápa, tekið er úr innrétting fyrir ísskáp. 

Annað: 
-Árið 2023 voru gólfefni endurnýjuð ásamt eldhúsinnréttingu og tækjum og íbúðin máluð í framhaldinu.
-Árið 2018 var húsið málað að utan og var þá einnig farið í múrviðgerðir að utan. 
-Eignaskiptayfirlýsing er til fyrir húsið.
-Ekki er gert ráð fyrir þvottavél inn í íbúðinni en sameiginlegt þvottahús er á jarðhæðinni ásamt hjólageymslu. 


Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lfs. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lfs. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.