Laugarbrekka 15, 640 Húsavík
38.500.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
111 m2
38.500.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1955
Brunabótamat
43.600.000
Fasteignamat
28.850.000

Lögeign kynnir eignina Laugarbrekka 15, 640 Húsavík.

Um er að ræða 111,7 M² jarðhæð. Húsið er byggt árið 1955 úr steypu og íbúðin með sér inngangi, gengið er inn að austan verðu. 
Nánari Lýsing:
 Forstofa, stofa, eldhús, tvö svefnherbergi, borðstofa, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa:
 komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofu er hol sem tengir saman öll önnur rými eignarinnar. 
Stofa: er björt og rúmgóð, er tvískipt og skiptist í borðstofa og sjónvarpsstofu. Borðstofan er með útgengi út á timburverönd og sjónvarpsstofan á V/hönd. 
Eldhús: er með flísalögðu gólfi með gólfhita, innréttingin er með bæði efri og neðriskápum, innbygðum tækjum að frátöldum ísskáp. Inn af eldhúsinu er síðan lítið þvottahús með flísum á gólfi, vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 
þrjú svefnherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott og með fataskáp, tvö svefnherbergi sem eru aðeins minni. Hjónaherbergi og eitt annað svefnherbergi eru við holið og svo er eitt svefnherbergi staðsett inn af sjónvarpsstofu. 
Baðherbergi: var endurnýjað í desember 2024, Flísalagt í hólf og gólf, sturtubaðka, hvít innrétting með skáp, handklæðaofn og frístandandi Wc. 
Gólfefni: flísar eru á forstofu, eldhúsi, þvottahúsi og baðherbergi. Parket á alrými, stofu, borðstofu, svefnherbergjum og geymslu. 

Annað:
-Eignin er með forkaupsrétt.
-Eignaskiptayfirlýsing er til fyrir húsið. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lfs. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lfs. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.