Lögeign kynnir eignina Helluhraun 17, 660 Mývatn.Um er að ræða einbýlishús sem er búið að breyta í tvær aðskildar íbúðir, eignin er byggð úr holsteini árið 1973 og samtals stærð eignar 137.2 fm. Nánari lýsing: Íbúð 1: Þegar komið er inn tekur við flísalögð forstofa, inn af forstofu er lítill gangur sem tengir saman baðherbergi, svefnherbergi og eldhús/stofu. Baðherbergið er með flísalögðu gólfi, sturtuklefa, vegghengdu wc og vask. 1 svefnherbergi er í íbúðinni sem er fataskáp og ágætt að stærð, herbergið er með fljótandi parketi með gang og eldhúsi/stofu. Eldhúsið er í opnu rými með stofu, hvít minni innrétting með bæði efri og neðri skápum. Innréttingin er með innbyggðum tækjum og háf fyrir ofan helluborð, rýmið er parketlagt.
Íbúð 2: Komið er inn í forstofu með epoxy lökkuðu gólfi, lítil vaskainnrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél. Við endan á forstofu er geymsla. Stofan er rúmgóð og með stórum gluggum sem hleypa birtu inn, parketlagt gólf. Eldhúsið er með eldri innréttingu sem er bæði með efri og neðri skápum og við endan á innréttingu er borðkrókur. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, eitt sem er sérlega rúmgott og með útgengi út í garð og svo eitt minna, bæði herbergin eru parketlögð og eru bæði staðsett á herbergisgang.
Kjallari; hurð inn í kjallaran er staðsett aftan við hús, steypt gólf að hluta og svo moldargólfi á rest. Töluverður hiti er í kjallaranum og er kaupendum bent á að kinna sér ástand kjallarans vel.
Nánari upplýsingar veita Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eðea netfanginu [email protected] og Hinrik Marel Jónasson Lund Löggiltur fasteignasali, í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected].Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á