Héðinsbraut 4, 640 Húsavík
Tilboð
Atvinnuhús
0 herb.
78 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1947
Brunabótamat
25.450.000
Fasteignamat
10.800.000

Lögeign kynnir eignina Héðinsbraut 4, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 01-15, fastanúmer 253-1772 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Bilið sem um ræðir er 78,6 M² og er númer 01-15 á teikningu. Einnig er bilið við hliðina, nánar tiltekið eign merkt 01-16, 78,6 M² og fastanúmer 253-1773. Býðst væntanlegum kaupanda að kaupa báða eignarhluta og nota sem einn á meðan báðir eignarhlutar eru óseldir.

Húsið er miðsvæðis á Húsavík. Húsið er byggt árunum 1947-88 og er U-laga, en iðnaðarbilð sem hér er til sölu er í norðurálmu sem var byggð árið 1973. Aðgengi að eigninni er gott, en stórt malbikað svæði er í porti við húsi. Um er að ræða eign í stóru húsnæði og eru aðrir eignarhlutar í húsnæðinu skráðir sem m.a. vörulager, rafverkstæði og undir ýmiskonar iðnað og er samtals stærð húsins 1232,9 m2 og stendur það á 4001 m2 iðnaðar- og athafnarlóð.

Húsnæðinu var nýlega breytt með nýjum eignaskiptasamning og urðu þá skráð 5 iðnaðarbil í norðurhlutanum sem hvert um sig mun hafa sér fastanúmer. Bilin verða um 5,12 metrar á breidd og 15,4 metrar á lengd. 
Árið 2025 mun hús vera málað að utan og skipt verður um þak yfir norðurhlutanum og verður það gert allt gert á kostnað seljanda.

Að innan er hægt að semja um frágang og hægt að taka við eigninni/eignunum eftir því á hvaða byggingarstigi hún er þá stundina. Gert verður ráð fyrir glugga til norðurs í hverju bili og ljósum í loftinu. Heitt og kalt vatn verður í hverju bili og vaskur. Lagt verður fyrir rafmagni í hverju bili. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.