Laugarbrekka 19, 640 Húsavík
36.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
131 m2
36.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1951
Brunabótamat
56.550.000
Fasteignamat
35.350.000

Lögeign kynnir eignina Laugarbrekka 19, 640 Húsavík

Um er að ræða 131,2 M íbúð í þríbýlishúsinu Laugarbrekku 19. Húsið er byggt árið 1951 úr steypu og deilir íbúðin stigagang með íbúð á efstu hæð eignarinnar. 

Eignin samanstendur af forstofu, herbergisgang, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi, búri, borðstofu og stofu.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa er parketlögð og er samtengd gang og holi íbúðar. Opið er úr holi inn í önnur rými og eru stofur og hluti eldhús með sama gólfefni. Eldhúsið er með gluggum að laugarbrekku og er eldhúsinnrétting með dökkri viðinnréttingu og hvítri borðplötu. Þvottahús og búr er svo inn af eldhúsi. Dúkur er á gólfi við innréttingu en parket er á eldhúskrók. 
Opið er úr holi inn í stofu, sem er tvískipt er hægt að hafa bæði borðstofu og sjónvarpsstofu. Úr stofu er hægt að ganga út á svalir. 
Tvö svefnherbergi eru innst á ganginum og eru þau bæði rúmgóð. Dúkur er á gólfi í báðum herbergjum og bæði herbergin eru með fataskáp.  Áður voru einnig herbergi í stofu og þar sem eldhúskrókur er og væri hægt að útbúa það aftur. 
Baðherbergi er á milli svefnherbergja og er það með hvítum flísum á gólfi og veggjum, sturtubaðkari, og hvítri skápainnréttingu með vask. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.