Héðinsbraut 3, 640 Húsavík
79.900.000 Kr.
Atvinnuhús
9 herb.
287 m2
79.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1907
Brunabótamat
122.600.000
Fasteignamat
27.830.000

Lögeign kynnir eignina Héðinsbraut 3, Hlöðufell 640 Húsavík, 

Eignin var byggð var árið 1907 og er á þremur hæðum, samtals 287,9 m2, sem skiptist þannig að kjallari er 108,8 m2, miðhæð er skráð 152,4 m2 og efri hæð sem er 26,7 m2. Húsið er sérstaklega vel staðsett og stendur á 762 m2 lóð í miðbæ Húsavíkur. Á lóð norðan við núverandi byggingu er heimilt reisa viðbyggingu á tveimur hæðum auk kjallara, að grunnfleti 288 m2 og samtals á þremur hæðum 550 m2. Lóðin og gamla húsið bjóða upp á ýmsa möguleika til uppbyggingar. Á þeim hluta lóðarinnar er nú bílastæði sem tilheyrir eigninni. 

Farið var í miklar framkvæmdir á eigninni fyrir um tveimur árum.
Að utan;
- Hefur verið skipt um allt gler og glerlista.
- Hús og þak var málað og yfirfarið
- Smíðuð stór timburverönd meðfram húsi sem hægt er að ganga út á úr aðalsal.
- Steypt fyrir framan aðalinngang til að auðvelda aðgengi
Að innan;
- Aðalsalur var endurnýjaður að næstum öllu leyti. Var þá aukið við einangrun og komið fyrir sérstakri rakarvörn. Veggir voru panelklæddir og smíðaður bar í sama stíl með skuggalýsingu. 
- Allt húsið var heilmálað að innan og parket var lagt á aðalsal og rishæð. Kjallari var málaður með gólfmálningu.
- Neysluvatns- og frárennslislagnir voru endurnýjaðar að miklu leyti og sett upp nýtt miðstöðvarkerfi og ofnar endurnýjaðir. Á sama tíma var skipt um lagnagrind og kaldavatnsinntak.
- Rafmagn var endurnýjað að mestu leyti og voru settar tvær nýjar töflur. 
- Smíðaður var hringstigi úr starfsmannaaðstöðu frá bar og niður í eldhús.
- Snyrtingar niðri voru endurnýjaðar að miklu leyti.
- Brunaboðar voru endurnýjaðir og sett upp brunastöð sem er með vaktara. 

Byggingarreitur verið hliðina á húsi gerir ráð fyrir allt að 12 íbúðum.

Nánari lýsing eignar

Komið er inn í andyri frá aðalgötu bæjarins og þaðan gengið upp í veitingasal. Efra loft er yfir helmingi hússins og er þar útgengi út á svalir sem snúa að aðalgötu og kjallari undir öllu húsinu sem skiptist í nokkur rými. Elsti hluti hússins er byggður árið 1907 og var byggt við það þrisvar og það endurnýjað alveg árið 1962.

Í gegnum langa sögu hússins hafa þar verið reknar verslanir, þar hefur verið félagsheimili, veitingastaður og tvisvar hafa þar verið söfn. Eignin hefur því mikla notkunarmöguleika og byggingarreitur norðan við húsið eykur enn frekar við mögulega notkun.
Núna er starfræktur veitinga- og skemmtistaður í húsinu og er leigusamningur í gildi sem kaupandi gæti yfirtækið.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða í netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.