Héðinsbraut 4, 640 Húsavík
Tilboð
Atvinnuhús
0 herb.
427 m2
Tilboð
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
1947
Brunabótamat
128.950.000
Fasteignamat
24.810.000

Lögeign kynnir eignina Héðinsbraut 4, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 01-13, fastanúmer 253-1771 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Héðinsbraut 4 01-13 er 427,5 m2 iðnaðarbil sem er skráð sem fiskverkun. Eignin er með miklu geymslusvæði og hátt er til lofts. Hægt er að ganga upp á efri hæð í horni eignarinnar í rými sem áður var notað sem skrifstofa. Þar inn af er svo geymsla. Undir þessum rýmum eru tveir kælar og svo beint undir skrifstofurými er gert ráð fyrir að sé snyrting. 
Gluggar eru í átt að Héðinsbraut, aðkoman í rýmið er í gegnum port sem keyrt er inn í frá Ketilsbraut.

Húsið er miðsvæðis á Húsavík og stendur við aðalumferðargötu bæjarins. Húsið sjálft er byggt í sex áföngum á tímabilinu 1947-88 sem mjólkursamlag K.Þ. Grunnflötur hússins í heild er U-laga og er þessi eign í horni hússins og eru iðnaðabil sitthvorum megin við hana.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða í netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.