Lögeign kynnir eignina Héðinsbraut 4, 640 Húsavík.Nánar tiltekið er um að ræða eignarhluta með 16 fastanúmerum þar sem heimilt er að gera 12 íbúðir.
Samtals stærð eignarinnar er um 870 m2.
8 herbergi eru á efstu hæðinni sem hafa verið í útleigu til fyrirtækja á svæðinu. Þar er salernis og sturtuaðstaða í sameiginlegu rými og svo eldhús/ setustofa í stóru sameiginlegu herbergi.
Á neðri hæðinni eru svo rými sem hafa verið notuð sem iðnaðarbil sem gert er ráð fyrir að verði breytt í íbúðir. Gert er ráð fyrir 12 íbúðum á 1 og 2 hæð, geymslum í kjallara sem tilheyra íbúðum ásamt 4 stærri rýmum í kjallara sem geta nýst fyrir ýmsa sameiginlega aðstöðu fyrir íbúðirnar.
Húsið er miðsvæðis á Húsavík og stendur við aðalumferðargötu bæjarins. Húsið sjálft er byggt í sex áföngum á tímabilinu 1947-88 sem mjólkursamlag K.Þ. Grunnflötur hússins í heild er U-laga og er keyrt inn í port frá Ketislbraut til að komast sem best að eigninni. Einnig er skábraut frá Héðinsbraut að suðurhlið kjallara. Húsið er tvílyft steinsteypt hús með steyptum kjallara.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða í netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á