Grundargarður 5, 640 Húsavík
Tilboð
Fjölbýli
3 herb.
93 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
45.250.000
Fasteignamat
29.850.000

Lögeign kynnir eignina Grundargarður 5, íbúð 302 640 Húsavík

Lögeign fasteignasala kynnir mikið endurnýjaða íbúð á 3 hæð í fjöleignarhúsi á Húsavík. Íbúðinni hefur verið breytt á þann hátt að núna eru fjögur svefnherbergi í eigninni. Eignin er skráð 93.8 m2 íbúð með sérgeymslu. Íbúðin sjálf er 83.5 m2 en geymsla sem tilheyrir íbúð er 10.3 m2.

Eignin samanstendur af forstofu, herbergisgang, 4 svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi. 

Nánari lýsing
Baðherbergi var allt endurnýjað á smekklegan hátt árið 2017. Voru þá setta nýjar flísar á gólf og tvo veggi, salerni, sturtubaðkar með sturtuhengi og innrétting. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu. 
Herbergin eru fjögur í íbúðinni. Tveimur herbergjum var bætt við í íbúðinni árið 2017 á kostnað rýmis í stofu og er annað þeirra frekar lítið.
Eldhús  var endurnýjað árið 2017 og eru efri og neðri skápar í eldhúsinnréttingu hvítir og bekkjarplata úr við. Eldhúskrókur er inn af eldhúsinu. Búið er að brjóta niður vegg inn í forstofu sem sameinar eldhúsið inn í forstofu og herbergisgang.
Stofan er í miðrými íbúðarinnar. Úr stofunni er hægt að ganga út á svalir sem snúa til vesturs. Við enda stofurnar er líkt og áður segir búið að útbúa herbergi. 
Gólefni. Plastparket er á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi en þar eru nýlegar flísar. 
Geymsla sem tilheyrir íbúðinni 10.3 m2 og er hún staðsett í kjallara en þar er einnig sameiginleg hjóla- og vagnageymsla og þurrkherbergi.
Aðgengi að eigninni er gott en gengið er að húsinu austan megin frá stóru malbikuðu bílastæði. Flísar eru við inngang en gólf í sameign er að öðru leyti teppalagt. Stór grasföt er bæði vestan og austan megin við húsið. 

Endurbætur
Búið er að fara í töluverðar endurbætur á fjöleignarhúsinu að utan.  
Skipt var um þakkant, rennur, vindskeiðar og niðurföll árið 2010.
Skipt var um glugga, gler, gluggakistur, útidyrahurðir, svalahandrið árið 2016
Farið var í múrviðgerðir og húsið allt málað að utan árið 2016
Árið 2017 var farið í miklar framkvæmdir á íbúðinni að innan, þar sem m.a. var farið í framkvæmdir á baðherbergi og eldhúsi auk þess sem skipt var um gólfefni.

Almennt séð er um að ræða góða eign, þar sem búið er að fara í miklar framkvæmdir á húsinu sjálfu og búið að endurnýja íbúðina að miklu leyti, þ.á.m. með því að skipta öllu út á baðherbergi og í eldhúsi. Eignin er á vinsælum stað í nálægð við skóla, íþróttamannvirki, leiksvæði og miðbæ Húsavíkur. 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson í síma 865-7430 eða í netfanginu [email protected] eða Hinrik Lund lgf. í síma 835-0070 eða netfanginu [email protected]

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.