Mararbraut 23, 640 Húsavík
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
5 herb.
116 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1932
Brunabótamat
49.500.000
Fasteignamat
28.350.000

Lögeign kynnir eignina Mararbraut 23, 640 Húsavík.

Mararbraut 23 er 116,7 M² einbýlishús staðsett miðsvæðis á Húsavík, húsið er byggt árið 1932 úr steypu og hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.
Nánari lýsing;

Kjallari (48,4 M²): Eitt svefnherbergi, Baðherbergi, Þvottahús og Hol/forstofa.
Hol: Flísalagt hol sem tengir öll rými í kjallara saman, útgengt er úr holinu út á gangstétt V/megin við húsið ásamt því að stigi upp á miðhæð eignarinnar er einnig við endan á holinu. 
Eitt svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og glugga sem snýr í vestur. 
Baðherbergi: er flísalagt í hólf og gólf, vegghengd Wc, sturtubaðkar og hvít vaskainnrétting. 
Þvottahús: með flísalögðu gólfi, rúmgóðum skápum og vask. 
Miðhæð (44 M²): Forstofa, Stofa, Borðstofa og Eldhús.
Forstofa:
 aðalinngangur inn í eignina er á miðhæðinni, parketlagt gólf og stigi upp á rishæð er einnig staðsettur í forstofunni. 
Stofa: er staðsett inn af forstofu, fljótandi parket úr forstofunni og gluggar á tveimur hliðum með útsýni yfir flóan. 
Borðstofa og Eldhús: eru saman í opnu rými og bæði parketlögð, eldhúsið var endurnýjað árið 2017 með grárri innréttingu með bæði efri og neðri skápum, viðarlitaðri bekkplötu og innbyggðum eldhústækjum.
Rishæð (24,3 M²): Hol, Tvö svefnherbergi og baðherbergi:
Hol: þegar komið er upp stigan tekur við parketlagt hol sem tengir öll rýmin á hæðini saman. 
Tvö Svefnherbergi: bæði svefnherbergin eru parketlögð og undir súð, hjónaherbergið er með fataskáp og lítilli geymslu. 
Baðherbergi: er með parketi á gólfi, lítilli vaskainnréttingu og vegghengdu Wc, risgluggi er á baðherberginu. 
Að utan: í kringum hús er snyrtilegt, 30 M² sólpallur með skjólveggjum og geymslu. Tveir geymsluskúrar eru í garðinum og einn af þeim með rafmagni, malaborið bílastæði sem rúmar tvo bíla. 

Endurbætur: 
  • Þak endurnýjað árið 2007 og betrum bætt árið 2024. 
  • Húsið einangrað og klætt að utan árið 2024.
  • Gluggar endurnýjaðir árið 2010.
  • Baðherbergi í kjallara endurnýjað 2007 og baðherbergi á rishæð endurnýjað 2017.
  • Gólfefni á miðhæð og rishæð endurnýjuð 2017.
  • neysluvatnslagnir endurnýjaðar á miðhæð 2017. 
  • Búið er að drena frá bílastæði og framan við hús. 
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu [email protected] eða Hinrik Marel Jónasson Lund lgf, í síma 8350070 eða netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.